369 - Lát þig lífs ei buga byrði

Lát þig lífs ei buga byrði,
berðu hana Jesú mót,
einkum þó, ef þung hún yrði,
því hann kann við öllu bót.
Beindu sjónum hátt til hæða
heimsins yfir myrkan dal.
Þeim, sem undir beiskar blæða,
búin huggun veitast skal.
Þeim, sem undir beiskar blæða,
búin huggun veitast skal.

Þó að grýttur vegur verði,
vík þú ei frá sannri trú.
Sigra gjör sem Kristur gerði,
Guðs í samfélagi bú.
Beindu sjónum hátt til hæða,
horfðu kóngi lífsins mót.
Þú munt sigra, þú munt græða,
því hann kann við öllu bót.
Þú munt sigra, þú munt græða,
því hann kann við öllu bót.


Höfundur lags: V. Wikholm
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila