364 - Enginn þarf að óttast síður

Enginn þarf að óttast síður
en Guðs barnaskarinn fríður,
fugl í laufi innsta eigi,
ekki stjarna' á himinvegi.

Sjálfur Guð á Síonsfjöllum
sól og skjöldur reynist öllum
barna skara' í böli' og hörmum,
ber hann þau á föðurörmum.

Engin neyð og engin gifta
úr hans faðmi má oss svipta.
Vinur er hann vina bestur,
veit um allt, er hjartað brestur.

Hann vor telur höfuðhárin,
heitu þerrar sorgartárin;
hann oss verndar, fatar, fæðir,
frið og líf í sálum glæðir.

Syng því dátt með sigurhljómi,
Síons hjörð, og einum rómi.
Hræðast þarf ei, fjendur falla
fyrir Drottins orði snjalla.

Svo er endar ógn og stríðin,
upp mun renna sigurtíðin.
Oss þá kallar heim til hallar
himna Guð, er lúður gjallar.


Höfundur lags: Sænskt þjóðlag
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila