359 - Þér, Jesús, hef ég heitið

Þér Jesús, hef ég heitið
að helga líf mitt hér,
þú Herra' og hjartans vinur,
æ, hjá mér sífellt ver.
Ég ekkert stríð mun óttast,
og ei ég villast má,
ef vegljós mitt þú verður
og vilt mér standa hjá.

Veit náð með nálægð þinni,
svo náin veröld er,
mig gyllisýnir ginna
og gæluradda her.
Mér fjendur ótal ögra
hið innra' og kringum mig.
Ó, vörn mín, Jesús, vertu
ég vona' á einan þig.

Þig, Herra, lát mig heyra,
lát hljóma boðskap þinn
hátt yfir innri storma
og eigin vilja minn.
Ó, virstu við mig tala
og vek og hvettu mig,
ó, gef ég hlýðinn hlusti,
minn hirðir trúar, á þig.

Þú, Jesús, hefur heitið,
að hver sem fylgir þér,
í dýrð með þér sá dvelji,
ó, Drottinn, hjálpa mér.
Þér, Jesús, hef ég heitið
að helga þér mitt líf,
en án þín ekkert get ég,
mín einka von og hlíf.

Í fótspor þín að feta
mig fýsir, Jesús minn,
en fylgt þér aðeins fæ ég,
ef finn ég kraftinn þinn.
Ó, leið mig, drag mig, lýs mér
og leys mig nauðum úr.
Ó, gef mér himna gleði,
minn Guð og vinur trúr.


Höfundur lags: A. H. Mann
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila