358 - Jesú Kristi ég vil fylgja

Jesú Kristi ég vil fylgja
jafnan mína ævitíð.
Hátt þó rísi hafsins bylgja
hans mig geymir náðin blíð.

Hann sem forðum hasta réði
hátt á vin og straumaföll.
Lífsins góða orð oss léði
ljóst vér nú þess heyrum köll.

Gef mér, Jesús, styrk að standa
stöðugum í trú og dyggð,
lát þitt sannleiksljós og anda
leiða farsæld yfir byggð.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Þorkell Bergsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila