28 - Öll sköpun tigni Drottin

Alheimur syngur Drottni dýrð,
Drottni sé vegsemd gjörvöll skírð.
Hallelúja, hallelúja!
Þú sól, í heitri sindur glóð
og silfurmáni ljúfum óð.
Tignið Drottin, tignið Drottin.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja!

Þér vindar hvassir, blíður blær,
blikandi skýin nær og fjær,
tignið Drottin, hallelúja!
Ármorgnar fagran syngið söng,
síðkvöldin endurómið löng.
Tignið Drottin, tignið Drottin.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja!

Ó, straumavötnin tandurtær,
tónflóði veitið Drottni nær.
Tignið Drottin, hallelúja!
Ó, eldur snillibjartur brenn,
birtu og yl þinn gef í senn.
Tignið Drottin, tignið Drottin.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja!

Lát alla hluti endalaust
í auðmýkt tigna hann við raust
tignið Drottin, hallelúja, hallelúja!
Tigna Guð föður og Guð son,
Guð Helgan anda, mannkyns von.
Tignið Drottin, tignið Drottin.
Hallelúja, hallelúja, hallelúja!


Höfundur lags: Geistliche Kirchengesänge Köln
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila