355 - Tak þú allt sem í mér er

Tak þú allt sem í mér er,
allt mitt líf skal helgast þér.
Lát þú verkin sem ég vinn,
vitna, Guð, um kærleik þinn,
vitna, Guð, um kærliek þinn.

Fætur mína fagra ger,
Fljóta til að vinna þér.
Tak mín ljóð og lát þú mig
lofgjörð syngja, Guð um þig,
lofgjörð syngja, Guð um þig.

Lát þú tungu mína' og munn
mönnum verk þín gera kunn.
Glaður gull og silfur mitt
gef ég, allt skal vera þitt,
gef ég, allt skal vera þitt.

Allar, er þú gefur mér,
ævistundir helga' ég þér.
Allt sem get ég, á og vil,
einum þér skal heyra til,
einum þér skal heyra til.

Drottinn, verði vilji þinn,
vilja þínum lúti minn.
Verði, Herra hjarta mitt
heilagt konungsríki þitt,
heilagt konungsríki þitt.

Alla líka ég þér gef
elsku gnótt, sem til ég hef.
Þannig ég og allt skal mitt
eilíflega vera þitt,
eilíflega vera þitt.


Höfundur lags: H. A. C. Malan
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila