353 - Ó, hversu það ég þrái

Ó, hversu það ég þrái,
að þitt í samfélag
svo fast ég komist fái
að finni sérhvern dag,
minn Frelsari, þann frið,
sem enginn annar gefur
og ekkert jafnast við.

Ó, lát þitt orð mér lýsa
og leiða huga minn,
á rétta veginn vísa
í veröld hvert eitt sinn,
að finni‘ ég fögnuð þann,
sem enginn annar gefur
og enginn taka kann.

Þinn vil ég, Jesús, vera,
það veistu, Drottinn minn,
og ekkert, ekkert gera,
sem angrar huga þinn.
En viljinn veikur er,
ég treysti engu öðru,
en að þú hjálpir mér.


Höfundur lags: M. Prätorius
Höfundur texta: Elínborg Guðmundsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila