352 - Nær þér, ó, nær þér, minn Jesús

Nær þér, ó nær þér, minn Jesús,
nálægð þín veitir mér fró.
Styð mig í trú þér að þjóna,
þrek veit og hug mínum ró.

Nær þér, ó, nær þér, minn Jesús,
Nærri þér lifa ég vil.
Allt mitt ég gef þér með gleði,
guðsríkis leið þú mig til.


Nær þér, ó nær þér, minn Jesús,
náð þín er lífsvonin mín.
Ást þín er líkn mínu lífi,
lausnari, drag mig til þín.

Nær þér, ó, nær þér, minn Jesús,
nafnið þitt dásama ber.
Ástkæri lausnari,
lát mig lifa og vaxa í þér.


Höfundur lags: R. Harkness
Höfundur texta: Reynir Guðsteinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila