351 - Hærra, minn Guð, til þín

Hærra, minn Guð til þín, hærra til þín,
enda þótt öll sé kross upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.

Villist ég vinum frá vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.

Sofanda sýndu þá sólstigans braut
upp í þitt eilífa alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra minn Guð, til þín,
hærra til þín.

Árla ég aftur rís ungur af beð.
Guðs hús á grýttri braut glaður ég hleð.
Hver og ein hörmung mín
hefur mig, Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.

Lyfti mér langt í hæð lukkunnar hjól,
hátt yfir stund og stað, stjörnur og sól
hljómi samt harpan mín:
Hærra, minn Guð, til þín,
hærra, minn Guð, til þín,
hærra til þín.


Höfundur lags: L. Mason
Höfundur texta: Matthías Jochumsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila