348 - Ég vil fylgja frelsaranum

Hvar sem kann mín leið að liggja,
lausnari minn fylgi' ég þér.
Þó að myrkur geigvænt grúfi,
guðdóm þinn mitt auga sér.

Ég vil fylgja frelsaranum,
fyrir mig sem leið og dó.
Skyldi allt og allir bregðast,
einn ég honum fylgi þó.


Öfl hins illa valds og vindar
voru hljóðlát fyrir þér.
Hátt ég mínu höfði lyfti,
Herra minn, og fylgi þér.

Ofar böli öllu steigstu
eilíf hreinn í heimi hér.
Eftir þann ég feril fylgi,
fylgi Drottinn Jesús, þér.


Höfundur lags: J. Lawson
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila