344 - Ég fremur kýs Jesú

Að ganga með Jesús í gæfu og nauð
með gleði vil frekar en heimsvöld og auð.
Ég fremur kýs Jesú en lýðhylli' og lönd,
í lotning ég fylgi hans mildu hönd.

Hann mun vaka' í náð sinni nærri þér,
þegar neyð að höndum ber.
Ég fremur kýs Jesú en gull og glans
og geng í fótspor hans.


Hann elskar þig, leiðir og laðar að sér
og líknsamur breiðir sinn faðm móti þér.
Án Jesú er ævi þín ekki neitt,
hann einn getur hryggð þinni' í breytt


Höfundur lags: G. B. Shea
Höfundur texta: Reynir Guðsteinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila