343 - Ég elska þig, Jesús

Ég elska þig, Jesús, ég einnig er þinn.
Ég elska þig, Jesús, ég veit þú ert minn,
minn himneski lausnari, ljúfastur þú,
þér lofgjörð ég færi í staðfastri trú.

Ég elska þig, Jesús, sem unnir mér fyrst,
og eilífa keyptir mér sælunnar vist
með krossdauða þínum og þyrnanna neyð.
Ég þér vil nú fylgja um ævinnar skeið.

Ég lofa þig, Jesús, í lífi og deyð,
Ég lofa þig Jesús, í gleði og neyð.
Þá helstundin kemur og kraftur mér dvín,
ég kem þá, ó, Jesús, minn vinur til þín.


Höfundur lags: A. J. Gordon
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila