339 - Ef þitt takmark er að vinna

Ef þitt takmark er að vinna
einhvern tíma sigurkrans,
trúr í litlu læra að vera,
líta á dæmi meistarans.

Hann í bernsku hlýðni lærði,
heimilins prýði var,
gleði' og yndi öðrum veitti,
engan skugga líf hans bar.

Heyr, er Drottinn til þín talar,
tak því eins og Samúel,
eins og hann þig ungan gefðu,
einnig þér mun farnast vel.

Sjáðu Davíð, drenginn unga,
dag hvern annast sína hjörð.
Fyrir dyggð og hlýðni hlaut hann
hæsta tign, er gefst á jörð.


Höfundur lags: Home
Höfundur texta: Elínborg Guðmundsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila