338 - Ef fund þú girnist frelsarans

Ef fund þú girnist frelsarans
og finnst þér ei þú ná til hans,
send heita bæn þér brjósti frá,
hún brátt mun Jesú fundi ná.

Ef óskar þú, að opnist dyr
Guðs eilífs ríkis, gjör sem fyr,
send bæn að knýja öflugt á,
og upp mun verða lokið þá.

Ef Drottins þyrstir þig í náð,
haf þá hið sama góða ráð:
Lát bæn þér lind fram leiða þá
og lífsins vatn af hellu slá.


Höfundur lags: Þýskt lag
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila