337 - Ef ég í dag

Ef ég í dag hef nokkurn sært með synd
ef ég hef varpað skugga á Jesú mynd,
ef ég hef aðra tælt frá lífsins lind,
fyrirgef mér Guð.

Ef orð mín hafa verið ill og ströng,
ef athöfn mín var köld og breytnin röng,
ef hugsun mín var hyggjusnauð og þröng,
fyrirgef mér Guð.

Ef líf mitt hefur verið ljósi sneytt,
ef lamað hefi ég og aðra deytt,
ef ég í einhverju hef illa breytt,
fyrirgef mér Guð.


Höfundur lags: C. H. Gabriel
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila