332 - Ég vil byrja með þér

Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
því þú bætir minn andlega hag.
Ég vil byrja með bæn og með lofsöng,
er af blundi ég vakna hvern dag.

Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
ég vil byrja og enda með þér
öll mín daglegu störf, ó, hve dýrmæt
er þín dásamleg nærvera mér.


Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
meðan bernskunnar vordagur skín.
Æ, hví ætti ég þín ekki að leita,
fyrr en ellin er komin til mín.

Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
og ég bið þig að varðveita mig,
við hvert fótmál svo ljúft þú mig leiðir.
Sál mín lofar og vegsamar þig.

Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
og ég bið þig að vera hjá mér.
Með þér einum ég glaður vil ganga,
því að gleðina finn ég hjá þér.

Ég vil byrja með þér, ó, minn Jesús,
þegar brunninn minn lífskveikur er.
Lát mig sofna með söng mér á vörum.
Lát mig sofna og vakna hjá þér.


Höfundur lags: G. Nylander
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila