331 - Allt þér, Jesús, glaður gef ég

Allt þér, Jesús, glaður gef ég,
gef það allt sem hef ég til.
Þér að treysta, þig að elska,
þér ég lifa ætíð vil.

Allt ég glaður gef,
allt ég glaður gef.
Allt þér, Jesús góði, gef ég,
allt þér glaður gef.


Allt þér, Jesús, glaður gef ég.
Guð minn, bljúgur krýp þér hjá.
Þér að hjarta, Herra, vef mig
heimsins táli leystan frá.

Allt þér, Jesús, glaður gef ég,
gef mér sannleiks anda þinn,
svo ég allur eign þín verði,
eign mín þú og vinur minn.

Allt þér, Jesús, glaður gef ég,
Guð, mér nú í hjarta finn.
Ó, hve dýrðlegt er að vera
endurleystu, Drottinn minn


Höfundur lags: W. S. Weeden
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila