330 - Af heilagleik meir

Af heilagleik meira, ó, Herra, gef mér,
af hugrekki og tápi gegn freistingaher,
af trú á þinn almátt og eilífa frið,
af unaði hjartans og grandvörum sið.

Af þakklæti meira, ó, Guð minn, mér gef,
af gleðinni meir, því að fundið þig hef,
af Guðssonar vegsemd, af Guðssonar hryggð,
af Guðssonar kærleik, af sannleik og dyggð.

Af hreinskilni hjartans, enn meira gef mér,
svo mætti ég standast, ó, Guð, fyrir þér.
Ég vil, ó, ég vil, að minn vilji sé þinn
og verða þér líkur, ó, Frelsari minn.


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Matthías Jochumsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila