325 - Yfirgef mig ekki, Jesús

Yfirgef mig ekki, Jesús,
andvarp heyr þú mitt,
og á meðan aðra kallar,
auglit sýn mér þitt.

Herra, Herra, heyr þú andvarp mitt,
og á meðan aðra kallar,
auglit sýn mér þitt.


Lát mig finna, ljúfi Jesús,
líkn við hástól þinn,
hér ég krýp með hjarta særðu,
hjálpa, Drottinn minn.

Ó, þú brunnur allrar sælu,
aumur svala mér.
Hvergi' er frelsi' á himni' og jörðu.
Herra, nema' í þér.


Höfundur lags: W. H. Doane
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila