324 - Vertu, Jesús minn, hjá mér

Vertu, Jesús minn, hjá mér.
Mig lát aldrei sleppa þér,
bjartan, hlýjan bústað þér
Bú þú nú í hjarta mér,
Bú þú nú í hjarta mér.

Hjá þér æ er andi minn,
eini sálar huggarinn,
enginn veitir annar lið
eða gefur hjarta frið,
eða gefur hjarta frið.

Heimur gleði enga á,
upp sem fylli hjartans þrá,
en við brjóst þitt, ástvin minn,
á ég þegar himininn,
á ég þegar himininn.


Höfundur lags: H. A. C. Malan
Höfundur texta: Björn Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila