322 - Talaðu til mín, Jesús

Talaðu til mín, Jesús
traust mitt er allt á þér.
Himins að nema hljóma
hjálpari vertu mér.
Sýndu mér sólarheima,
sýndu mér þangað leið
Lífsins mér rækti rósir
raust þín um æviskeið.

Talaðu til mín, Jesús
tímans er örstutt bið
ljúfasti lífsins herra,
leiddu mig þér við hlið.
Auktu mér afl að sigra
allt gagnstætt þér.
Virstu þá við mig segja:
Verndari þinn ég er.


Talaðu til mín, Jesús
tendra mér vita þann
vandfarna leið mér lýsi
lífsins í fagra rann.
Anda þinn lát mig leiða
lífs meðan varir bið,
uppleið þá á ég vísa
endalok heimsins við.

Talaðu til mín, Jesús
taktu mér þér við hönd,
hjálpa mér heims að forðast
hættur og efnin vönd.
Himninum hug minn tengdu
hvar sem ég fara kann.
Talaðu til mín, Jesús,
tímans í nauða rann!


Höfundur lags: L. L. Pickett
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila