321 - Styð mig, Jesús

Styð mig, Jesús, úti og inni,
á þig set ég von og traust.
Halli freisting hugsun minni,
heyra lát mig þína raust.

Fyll mig, Jesús, friði þínum,
falli mig og hættum ver.
Veit mér lífs á vegum mínum
viljastyrk að líkjast þér.

Vertu, Jesús, vitund minni
vald og máttur, hvar ég fer.
Gef, að bæði sál og sinni
sé og verði eitt með þér.

Við þitt, Jesús, hjarta hreina
haltu mér á ævileið.
Þá við aðköst allra meina
er ég sæll í lífi og deyð


Höfundur lags: Home
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila