314 - Ó, Jesús, minnstu mín

Ó, Jesús, minnstu mín.
Ger mig af löstum frí,
er heims frá syndum hefji sýn
í hjarta hreinn á ný.

Ó, Jesús, minnstu mín.
Leys mig frá hverri neyð.
Í gegnum sorta, sorg og pín
sýn þú mér himin leið.

Ó, Jesús, minnstu mín.
Þá magnast veðra glær
og fimbul ógnin yfir hvín,
oss öllum vertu nær.

Ó, Jesús, minnstu mín.
Lát mig um eilífð þá,
er fári léttir, flóðið dvín,
þér fagna, Drottinn, hjá.


Höfundur lags: Úr Sálmum Damons
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila