311 - Leggðu mitt höfuð

Leggðu mitt höfuð, lausnari minn,
ljúft þér að hjarta, í kærleiksfaðm þinn.
Hælið mitt eina, hjálpaðu mér,
hjartkæri Jesús, að vaxa í þér,
hjartkæri Jesús, að vaxa í þér.

Allslaus ég nálgast náðarstól þinn,
neitt því ei færi þér, konungur minn,
annað en hjarta saurgað af synd,
sárin þess græðir þín blessunarlind,
sárin þess græðir þín blessunarlind.

Helgist þér líf mitt, hjarta og sál,
helgist þér vilja minn, athöfn og mál.
Getur þá ekkert ginnt mig frá þér,
Guð minn og frelsari, vertu hjá mér,
Guð minn og frelsari, vertu hjá mér.

Hærra, ó, hærra, hef mig til þín.
Helgist þér, Guð minn, hver ævistund mín.
Þegar svo héðan hólpin ég fer,
hjartkæri Jesús, þá verð ég hjá þér,
hjartkæri Jesús, þá verð ég hjá þér.


Höfundur lags: C. H. Morris
Höfundur texta: Pétur Sigurðsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila