309 - Hvert æviaugnablik

Hvert æviaugnablik
er æ í hendi þér,
sem ríkir hæst í hæð
og helgun jörðu lér.

Þú varst mér allt
og verður, varst mér allt.
Æ leið mig heim,
ó, Herra, í himnasal.


Hvert fótmál reynist feigð,
ef fylgir þú mér ei,
þú ert mitt líf og ljós,
hvort lifi' ég eða dey.

Lát kærleiks kvikna ljós
um kveld sett hjarta mitt.
Lát Heilags anda yl
þar inna verkið sitt.


Höfundur lags: R. Lowry
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila