306 - Gefðu mér trú

Gefðu mér, trú sem í dauðanum dugar,
daglega hvers konar þrautum sem er,
freistinga andstreymi eyðir og bugar,
allt, sem mig reynir að draga frá þér.

Gefðu mér kærleikans eldheita anda,
elskunnar göfuga falslausa blæ,
gefðu mér þrek til að stríða og standa
stöðugt, að lokum þá sigri ég næ.

Gefðu mér vísdóm að lifa og læra
lausnarans daglega hegðun og mál,
svo að mér auðnist að finna og færa
föður til húsanna glataða sál.

Gefðu mér hógværð og hugprýði sanna,
hegðan, sem guðsbarni sæmileg er,
verði ég leiðandi ljós þeirra manna,
leitandi' í skugganna fylgsnum að þér.

Gefðu mér, Drottinn minn, dýrðarvon bjarta,
dagstjörnu lífsins, er tindrandi slær
fullbirtu árdegis inn í mitt hjarta,
opni mér fegurðar heimkynni skær.


Höfundur lags: L. Mason
Höfundur texta: Höf. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila