302 - Drottinn minn

Drottinn minn, hérna hefst mín ferð.
Hærra og lengra ná ég verð.
Sérhverja stund bljúgt ég bið:
Bein minni för á hærra svið.

Lyftu mér, Guð, til himins hátt.
Herra gef þú trú og mátt.
Þú einn mér veitir frelsi, frið.
Fær þú mín skref á hærra svið.


Ég þrái burt frá efans slóð,
öllu, sem lamar þreksins glóð.
því ber ég fram þá bænagjörð:
Bein þú mér, Guð, á jörð.

Þrá mín er upp, já upp til þín
ofar en stjarna mergðin skín.
Gleðinnar óm, fær gripið önd
Guðs barna söng frá lífsins strönd.

Fýsir mig hæstu hæðum ná,
himinsins dýrðar ljóma sjá.
Áfram mín bæn til Guðs er gjörð:
Greið mína för á hærri jörð.


Höfundur lags: C. H. Gabriel
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila