297 - Í einum þér minn andi fann

Í einum þér minn andi fann
þann undraverða frið,
sem aldrei hef ég áður þekkt
og ekkert jafnast við.

Ó, Jesús kær, þitt náðarnafn
mér næga huggun lér,
svo dýrðlegt frelsi, frið og líf
ég fann í einum þér.


Ég þráði svölun, þráði hvild,
er þorstinn brenndi sál,
en allt var þurrt og autt og tómt,
og ekkert nema tál.

Ég þráði gleði þessa heims,
sem þó ég hafði misst,
uns náð þín opnaði' augun mín,
þá óðar fann ég Krist.


Höfundur lags: J. B. Dykes
Höfundur texta: Sigurbjörn Sveinsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila