22 - Syngjum dýrðarsöng

Herra, þér syngjum dýrðarsöng,
Sú vegsemd ómi ný og löng
Hallelúja, hallelúja!
Hásætisleið í himnavist
Höndlum vér fyrir Jesú Krist,
hallelúja, hallelúja, hallelúja,
hallelúja, hallelúja.

Leið þú oss, Herra', í himniátt,
Hjörtu vor styrk fyrir þinn mátt,
Hallelúja, hallelúja!
Þar ertu krýndur klár og hreinn
Konungur konunganna einn,
hallelúja, hallelúja, hallelúja,
hallelúja, hallelúja.

Drottinn, þinn fögnuð fær oss hér,
Fyll hann í himna vist með þér,
Hallelúja, hallelúja!
að með þér ríkjum, Herra hár,
Heiðrum og prísum eilíf ár,
hallelúja, hallelúja, hallelúja,
hallelúja, hallelúja.

Upprisinn, stiginn, Herra, hátt
heimur þig lofi' og tigni þrátt
hallelúja, hallelúja!
Meðan að öld fær öldum breytt
ertu með föð'r og anda eitt,
hallelúja, hallelúja, hallelúja,
hallelúja, hallelúja.


Höfundur lags: Geistliche Kirchengesänge Köln
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila