296 - Hvers vegna syng ég um Jesú?

Fögnuður hjarta mitt fyllir,
frelsarans ljómar þar mynd.
Lof sé þér, lausnarinn góði'
er leysir frá dauða og synd

Hví syng ég söng minn um Jesú,
sönginn um kærleikans stig?
Hann er minn dýrðlegi Drottinn,
dó til að frelsa mig.


Návist hans guðlegu gæsku
gerbreytti hjarta og sál.
Ljósbrot af lífinu hreina
leysti öll syndanna mál.

Hann er sá helgi og hreini,
hann er mín lilja og rós,
náðin og miskunnin milda,
mannheimi leiðandi ljós.


Höfundur lags: A. A. Ketchum
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila