295 - Ég syng af gleði

Ég syng af gleði, syng af hjarta
sönginn dýrsta, er ég kann,
því ekkert hljómar yndislegra' en hann,
óðurinn um kærleikann.

Hljómar harpa, harpa hjarta míns,
hún flytur fagurt lag
við fagnaðarins brag.
Hljómar harpa, harpa hjarta míns
um himins dýrð og kærleik Guðs.


Ég syng um Jesú, syng af gleði
sál mín fagnar kærleik hans.
Hann gaf sitt líf, sú gjöf mig þvoði' af synd,
gaf mér hlut í bústað hans.

Ég syngja mun þann söng um eilífð
samræmt stef með englum hans.
Í sölum himins hljómar óður skær,
helgur söngur kærleikans.


Höfundur lags: E. M. Roth
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila