293 - Ég vil syngja' um Jesú miskunn

Ég vil syngja' um Jesú miskunn,
Jesú elska dýrðleg er,
hann, sem þoldi kvöl á krossi,
keypti náð og frelsi mér.

Ég vil syngja' um Jesú kærleik.
Jesú blóð mér veitti frið.
Hann með sinni kvöl á krossi
Keypt mér hefur líf og grið.


Ég vil vitna' um Kristí kærleik,
kærleik, sem að aldrei dvín,
endurlausnargjaldið góða
greitt hann hefur, vegna mín.

Ég vil syngja' um sigurkraftinn,
sæll við Jesú kross ég dvel.
Dauðans veldi son Guðs sigrar,
synd og myrkur, gröf og hel.

Ég vil syngja' um Jesú kærleik,
Jesú elska himnesk er.
Hann frá deyð til lífs mig leiddi,
ljóssins hlið er opið mér.


Höfundur lags: Sænskt þjóðlag
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila