285 - Ég horfi yfir hafið

Ég horfi yfir hafið
um haust af auðri strönd,
í skuggaskýjum grafið
það skilur mikil lönd.
Sú ströndin strjála' og auða.
er stari' ég héðan af,
er ströndin stríðs og nauða.
er ströndin hafsins dauða,
og hafið dauðans haf.

En fyrir handan hafið
þar hillir undir land,
í gullnum geislum vafið
það girðir skýjaband.
Þar gróa' í grænum hlíðum
með gulls lit blómin smá,
í skógarbeltum blíðum
í blómsturlundum fríðum
má alls kyns aldin sjá.

Þar sé ég sólu fegri
á súlum standa höll
í dýrð svo dásamlegri,
hún drifin gulli' er öll.
Þar sé ég fylking fríða
og fagurbúna sveit
um ljóssins sali líða
með ljóssins ásýnd blíða
í unaðs aldinreit.

Ég hljóður eftir hlusta,
ég heyri klukkna hljóm.
Hve guðleg guðsþjónusta
er Guðs í helgidóm!
Ég heyri unaðsóma
og engla skæraraust
um Drottins dýrðarljóma,
um Drottins verk þeir róma
um eilífð endalaust.

Er þetta hverful hilling
og hugarburður manns?
Nei, Það er fögur fylling
á fyrirheitum hans,
er sýnir oss í anda
Guðs eilíft hjálparráð
og stríðsmenn Guðs þar standa
við stól hins allsvaldanda.
Þar allt er eilíf náð.


Höfundur lags: Íslenskt lag?
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila