283 - Allt eins og blómstrið eina

Allt eins og blómstið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgun stund,
á snöggu augabragði
afskorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði,
líf mannlegt endar skjótt.

Ég lifi' í Jesú nafni,
Í Jesú nafni' ég dey,
Þó heilsa' og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt
Krist í krafti' ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.


Höfundur lags: H. Tomisöns
Höfundur texta: Hallgrímur Pétursson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila