281 - Fyrst boðar Guð

Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið,
svo býður hann sitt ríka kærleiksborðið,
og sendir einkason sinn til að kalla
til sinnar kvöldmáltíðar alla, alla.

En fyrsti' og annar afsökunar biðja,
og eins fer líka boðsmanninum þriðja;
og það er kunngjört Herra hefðarríkum,
að heimsins börn ei sinni boðskapslíkum.

Þá spyr hann að, hvort veikir ekki vilji,
hvort volaðir og blindir ekki skilji?
Þá býður hann þeim bjargarlausu' og snauðu
þeim breysku, særðu, föllnu, týndu' og dauðu.

Hvert orð er sterkast? Orðið hans, er kallar.
Sjá, einnig dauðir ganga lífs til hallar,
þeir koma' í hópum, heimurinn sem smáir,
en Herrann segir: „Þeir eru' enn of fáir.“

Hann býður enn þá; „Farið, laðið, leiðið.
og leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið,
mitt kærleiksdjúp á himins víðar hallir,
í húsi mínu rúmast allir – allir.“

Fyrst kallar Guð, og bregðist þú því boði,
þá biður Guð, og þó að hvorugt stoði,
þá þrýstir Guð, og það er síðsta orðið,
ef því er neitað, hræðstu sálar morðið.

Ó, Drottinn, þú, sem býður, biður, neyðir,
ég blindur er, en sonur þinn mig leiðir
frá synd og hættum gegnum dauðans dalinn,
í dýrðar þinnar fagra gleðisalinn.


Höfundur lags: A. P. Berggreen
Höfundur texta: Matthías Jochumsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila