275 - Guð faðir sé vörður

Guð faðir sé vörður og verndari þínn,
svo veröld ei megi þér granda,
hvert fet þig hann leiði við föðurarm sinn
og feli þig sér milli handa.

Guðs sonur sé fræðari' og frelsari þinn,
ei frá þér hans skírnarnáð víki,
hann opni þér blessaðan ástarfaðm sinn
og innleiði þig i sitt riki.

Guðs andi sé hjálpari' og huggari þinn,
í heimi þín vegferðar stjarna,
hann hjálpi þér síðan í himininn inn,
að hljótir þú frelsi Guðs barna.


Höfundur lags: J. P. E. Hartmann
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila