263 - Á Herrans helga degi

Á Herrans helga degi skal hefja þakkargjörð
til dýrðar vorum vini, er verndar sína hjörð.
Mín sál nú syng um kærleik Krists til þín.
Mín sál, nú syng þann söng, er aldrei dvín.

Hann litlu börnin lagði svo ljúft að hjarta sér,
og alla menn hann elskar, þess einnig njótum vér.
Mín sál nú syng um kærleik Krists til þín.
Mín sál, nú syng þann söng, er aldrei dvín.

Vér þráum þig að elska og þín að halda boð.
Ó, barnavinur, vertu oss veikum hlíf og stoð.
Mín sál nú syng um kærleik Krists til þín.
Mín sál, nú syng þann söng, er aldrei dvín.


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Elínborg Guðmundsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila