262 - Sterk eru andans bönd

Sterk eru andans bönd,
sem eru í Guði knýtt,
þau laða og tengja sál við sál
í samband lífsins nýtt.

Í Kristi Jesú knýtt,
hið kristna bræðralag,
það felur í sér fyrirheit
um friðarsælan hag.

Hve dýrðleg dvöl er æ
í Drottins bræðrasveit.
Því yndi verður aldrei lýst,
það aðeins reyndur veit.

Þar hverfur munur hver,
þar hver er öðrum jafn,
því sömu tign þar sérhver á
og sama dýrðarnafn.

Þótt skilji lögur lönd,
ei lýð Guðs skilja höf.
Í álfum heims sú eining sterk
er andans sigurgjöf.


Höfundur lags: J. G. Nageli, L. Mason
Höfundur texta: Friðrik Friðriksson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila