261 - Eitt er hið æðsta

Eitt er hið æðsta allra boðorðanna,
helgasta, hæsta: Hjartans elskan sanna.
Ekkert annað sýnir eins þig Guðs vin sannan.
Elskið hver annan.

Krists orð oss kynna: Kærleik mest sá hefur
Sem vegna sinna sig í dauðann gefur.
Ekkert eins vel sýnir ást og kærleik sannan.
Elskið hver annan.

Bróðir vor blíði besta dæmi léði,
lét fyrir lýði líf með fúsu geði.
Ekkert annað sýnir eins hans kærleik sannan.
Elskið hver annan.

Viljir þú vera vinur Guðs og manna,
gott ber að gera, gæta boðorðanna.
Ekkert annað sýnir eins þinn kærleik sannan.
Elskið hver annan.

Vinir þá verið, vægið, líknið, blessið,
byrðar hins berið, bjargið, svalið, hressið.
Ekkert eins vel sýnir yðar kærleik sannan.
Elskið hver annan.


Höfundur lags: F. F. Flemming
Höfundur texta: Valdimar Briem

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila