250 - Mætumst vér?

Mætumst vér á ljóssins landi,
ljúf þar báran hlær við strönd,
þar um helga himingeima
hrelling nein ei þjáir önd?

Mætumst vér, mætumst vér,
mætumst vér hins vegar fljótsins?
Mætumst vér hins vegar fljótsins,
ljúf þar báran brosir hver.


Munum vér þar hólpnir hittast,
herferð þegar lokið er,
og þar láta akker falla
öðrum hjá, sem þekkjum vér?

Hittum vér þá hjartakæru,
hér sem vorum skilin frá?
Fáum vér um eilífð alla,
aftur þeim að dvelja hjá?


Höfundur lags: E. S. Rice
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila