241 - Heilög er heimvonin

Heilög er heimvonin dýra
heim í Guðs dýrðarborg.
Heim þar sem horfin er syndin,
harmur og neyð og sorg.

Heilög er heimvonin dýra.
heim í Guðs dýrðarborg.
Já, heim, þar sem horfin er syndin
og harmur og neyð og sorg.


Fagna þú, harmþrungna hjarta,
himinn Guðs bíður þín.
Senn kemur lávarður lífsins,
lyftir þér upp til sín.

Kom þú, já, kom þú, ó, Drottinn.
Kom og oss tak til þín,
þar sem að fögnuður, friður
frelsisins aldrei dvín.


Höfundur lags: W. F. Sherwin
Höfundur texta: David Östlund

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila