235 - Lamb Guðs, ég leita þín

Lamb Guðs, ég leita þín,
lifandi vonin mín,
lausnari minn.
Hlusta‘ er ég hljóður bið,
hjálp þína send og lið,
veit þú mér Drottinn Guð,
að vera þinn.

Megi þitt milda náð
mikla vort veika ráð,
vek hjarta mitt.
Guðdómlegt gafstu líf
gjörvallt að sigra kíf,
Drottinn, ég bið,
ég verði barnið þitt.

Ef ég í heimi hér
hrelldur og þjáður er,
Herra vor kær,
láttu þá lífsins sól
ljóma um jarðarból,
veit þá, ó, Jesús,
að ég verði þinn.


Höfundur lags: L. Mason
Höfundur texta: Aðalbjörg Magnúsdóttir

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila