234 - Það vantaði einn

Það vantaði einn af hundraðs hjörð,
sem við húsin undu kát,
bara´einn, sem veðrin velktu hörð
og varga fyrirsát.
Svo fjarri var hirðir´ hjálp og ráð
hann hlaut að verða dauðans bráð,
hann hlaut að verða dauðans bráð.

„Þú einn átt nítíu og níu til,
þó nú sé horftinn einn“
En hirðirinn sagði: ,,Ég víst ei vil,
að villist frá mér neinn.“
Þó bíði mín frost og fár og nauð.
Ég fer að heimta minn týnda sauð,
ég fer að heimta minn týnda sauð.

Ó, hver fær sagt, þó að heimtist heim,
hvað hirðirinn góði leið,
í villumyrkrum, um voðans geim,
yfir vötn og klungrin breið.
Hann heyrði kallað á hjálp í nauð,
hann heyrði gjörla sinn týnda sauð,
hann heyrði gjörla sinn týnda sauð.

Hvað þýða þeir dropar, sú dreyruga slóð,
ó, Drottinn, þá köldu leið?
„Fyrir sauðkind mína ég sel mitt blóð;
hún var sokkin í dauðans neyð.
Hví er hönd og fótur með svöðu sár?
Þar særði mig þyrnanna hvassi ljár,
þar særði mig þyrnanna hvassi ljár.

Þá flaug um jörðina fegins-óp,
þó full sé með sorg og nauð,
í fjöllunum gullu við gleðihróp:
„Ó, gleðjist, ég fann minn sauð“
Og ljóssins englar við æðri sól
það endurtóku við Drottins stól,
það endurtóku við Drottins stól.


Höfundur lags: I. D. Sankey
Höfundur texta: Matthías Jochumsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila