232 - Hver er sem Jesús?

Hver er sem Jesús, vor einkavinur?
Ekki neinn! ekki neinn.
Hver veitir huggun þá hjartað stynur?
Jesús einn. Jesús einn.

Hver veitir hjálp og hvíld í nauðum?
Og hver oss verndar? Jesús einn.
Hver er sem Jesús, vor einkavinur?
Ekki neinn. Ekki neinn.


Ó, hver er helgur og hreinn og góður?
Jesús einn. Jesús einn.
Hver er svo mildur sem hann og hljóður?
Ekki neinn. Ekki neinn.

Hver er sá vinur, sem fer ei frá oss?
Jesús einn. Jesús einn.
Sem er í náttmyrkri neyðar hjá oss?
Jesús einn. Jesús einn.


Höfundur lags: G. C. Hugg
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila