229 - Fagnið, heyrið sigursöng

Fagnið, heyrið sigursöng: Jesús er frelsari.
Senn mun lokið lífsins þröng.
Jesús er frelsari. Klífum brattann hönd,
Í hönd hljómi skýrt um dal og strönd
Drottins orðið undur þýtt:
Jesús, hann frelsar þig.

Höldum áfram hugarglöð, Jesús er frelsari.
Hindrum enginn hefti för.
Jesús er frelsari. Kom þú, kom til Krists
í dag kærleikans við syngjum lag:
Drottins náð er ný hvern dag,
Jesús, hann frelsar þig.

Syngdu hátt til sjós og lands. Jesús er frelsari.
Seg í eyra syndarans: Jesús:
Jesús hann frelsar þig lét á krossi lífið sitt
Leyst að fengist helsi þitt,
upprisunnar eignast líf,
Jesús er frelsari þinn.

Láttu hljóma‘ um heimsins láð: Jesús er frelsari.
Þegar hjartað þráir náð: Jesús, hann frelsar þig.
Syng þú djarft um sollin höf
Sigurlag um dauða, gröf.
Gleym ei þessum gleðisöng:
Jesús hann frelsar þig.


Höfundur lags: W. J. Kirkpatrick
Höfundur texta: Björk

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila