228 - Kom til Jesú

Kom til Jesú sjúka sál,
sár þín vill hann mýkja‘ og græða,
lát þig heims ei lokka tál,
lát þig gjálíft spott ei hræða,
haf þú veikleik holds í minni,
hygg þú vel að spilling þinni.

Krjúp þú Jesú krossi hjá,
klökk og auðmjúk seg af hjarta:
Læknir besti, sár mín sjá,
sjúkleik um ég hlýt að kvarta.
Helgri dreyra dögg með þinni
Drottinn, eyð þú spilling minni.


Höfundur lags: J. R. Ahle
Höfundur texta: Helgi Hálfdánarson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila