227 - Alfrjáls í örmum Jesú

Alfrjáls í örmum Jesú,
óhætt hans brjósti hjá,
undir Guðs ástar vængjum
öll stillist hjartans þrá.
Heyri ég hljóminn engla
hljóma í söng til mín.
Þar skulu Guðs börn gleðjast,
Guðs dýrð sem eilíf skín.

Alfrjáls í örmum Jesú,
óhætt hans brjósti hjá
undir Guðs ástarvængjum
öll stillist hjartans þrá.


Alfrjáls í örmum Jesú
áhyggjum leystur frá,
frjáls af freistarans snörum
fær synd ei grandað þá.
Leystur frá ótta‘ og efa
öllum og lífsins sorg,
stutt er tíð stríðs og tára,
stutt heim í Síons borg.

Jesús mitt hjartans hæli,
Herra, þú dóst fyr‘ mig,
þú ert mín hjálpar hella,
hugrór ég vona‘ á þig.
Gef þú mér styrk í stríði
stöðugt að hlýða þér,
uns að minn þreyttur andi
eilífðar dagsbrún sér.


Höfundur lags: W. H. Doane
Höfundur texta: Þýð. ókunnur

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila