225 - Alfrjáls

Ó, friðþæging Drottins ég fagna
og frelsinu, sem ég nú á,
allt fyrir hans guðlegu gæsku,
svo Guðs barn ég teljast nú má.

Alfrjáls, alfrjáls fyr‘ guðslambsins
sigur og stríð.
Alfrjáls, alfrjáls um
eilífa, eilífa tíð.


Alfrjáls, hve ég fagna í Jesú,
það fær ekkert tungumál greint
né ljósið, hans lýsandi nálægð,
sem leiðir mig stöðugt og hreint.

Þar bíða mín heilagar hallir
Um himnanna eilífu hvel.
Í fylgd með hans frelsaða skara
hjá föðurnum heima ég dvel.


Höfundur lags: W. J. Kirkpatrick
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila