214 - Það stendur opið

Það stendur opið himins hlið,
míns Herra kærleiks ljómi
skín þaðan á mitt sektar svið,
ég síst þarf kvíða dómi.

Það náð og miskunn eilíf er,
að opnað hliðið var fyr' mér,
fyr' mér, fyr' mér,
var opnað fyrir mér.


Um þetta bjarta himins hlið
er hverjum frjálst að ganga,
sem þráir Drottins frelsi' og frið,
og forðast veginn ranga.

Já, fram, þó heimur ógni oss,
til uppheims veginn beina,
og tökum á oss Kristí kross,
það kærleiksmerkið hreina.


Höfundur lags: Höf. ókunnur
Höfundur texta: Jón Jónsson frá Hvoli

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila