213 - Sjá, lausnarinn bíður

Sjá, lausnarinn bíður að lifa þér hjá.
Ljúk upp og bjóð honum inn.
Lát ekki neitt heimslegt þér halda'honum frá,
hann til þín koma vill inn.

Aftur og aftur hann beið þín og beið
og bíður þess enn um sinn
að sjá hvort ei opnist sú lokaða leið,
leiðin að hjarta þér inn.


Ef gengur þú, vinur, á frelsarans fund,
finnurðu' hann bíða þín.
Þá hverfur burt myrkrið og lifnar þín lund,
líf hann þér veitir og sýn.


Höfundur lags: R. Carmichael
Höfundur texta: Jón Hj. Jónsson

Hefur þú athugasemdir eða tillögur? Sendu okkur póst hér!

© 2020-2024 Kirkja sjöunda dags aðventista
Höfundarréttur texta í eigu viðeigandi höfunda og útgáfuaðila